Einfaldur, raunhæfur og kerfisbundinn árangur.

Ef þú ert byrjandi í ræktinni, búinn að vera að mæta en veist ekki hvað þú átt að vera að gera. Þá ertu á réttum stað.

Ég hjálpa byrjendum að ná mælanlegum árangri í hverri viku í gegnum fjarþjálfun, ekkert flókið prógramm, ekkert rugl, bara árangur.

Drengur sem skráði sig í fjarþjálfun að taka upphífingar í ræktinni.

Um þjálfarann

Ungur maður sem skráði sig í fjarþjálfun til að koma sér í gott form

Ég heiti Hugi Snær Jónsson og er ÍAK menntaður einkaþjálfari. Ég hef verið að æfa reglulega í 5 ár. Þegar ég byrjaði að æfa var ég tæplega 65 kg en núna er ég orðinn rúmlega 15 kílóum þyngri og töluvert þéttari.

Margir sem leita til mín hafa verið að mæta í ræktina mánuðum saman án þess að sjá raunverulegar breytingar. Skipta stöðugt um prógrömm, æfa án skýrrar stefnu og eru ekkert að bæta sig.

Ég hef sjálfur farið í gegnum þetta, og það er ekkert flókið að laga þetta. Það þarf bara skýrt skipulag, vel valdar æfingar og dugnað. Aðalmarkmiðið er alltaf að gera betur heldur en á seinustu æfingu.

Fjarþjálfun

Plan A

Fjarþjálfun með mikilli eftirfylgni 

  • Sérsniðið æfingaplan uppfært eftir þörfum

  • Kerfisbundinn árangur

  • Vikuleg check-in í skilaboðum eða tölvupósti

  • Ótakmarkaður stuðningur í skilaboðum eða tölvupósti

  • Leiðréttingar á tækni í gegnum myndbönd

  • Einföld og raunhæf næringarleiðsögn

22.500 kr. á mánuði

Plan B  

  • Sérsniðið æfingaplan og ráðleggingar með næringu á 4 vikna fresti

  • Vikuleg check-in í skilaboðum eða tölvupósti

  • Einfalt og skilvirkt fyrir þá sem treysta sér í að halda sér við efnið sjálfir

Fjarþjálfun fyrir þá sem þurfa minni eftirfylgni

12.900 kr. á mánuði

Plan C

45 mínútna viðtal og ráðleggingar 

  • Símtal eða fundur í mynd þar sem við förum yfir bæði æfingar og næringu og ráðleggingar út frá því

  • Æfingaplan byggt á þínum markmiðum

  • Ráðleggingar með næringu

7.300 kr. einu sinni

Algengar spurningar

Hafðu samband

Ef þú ert með einhverjar spurningar eða sérstakar fyrirspurnir getur þú sent mér skilaboð hérna. Ég mun svara eins fljótt og auðið er.